Ný lög um innstæðutryggingu munu takmarka mjög þau innlán sem munu njóta innstæðuverndar. Þau kveða á um 100 þúsund evra hámarkstryggingu og krefjast þess að framlag viðskiptabanka í tryggingasjóð innstæðueigenda verði hækkað um marga milljarða króna á ári

Ein helsta breytingin sem verður á lögum um tryggðar innstæður samkvæmt frumvarpinu er sú að þar er fallið frá tryggingu á ýmsum tegundum innlána sem í dag njóta tryggingar. Þar ber helst að nefna innstæður í eigu fjármálafyrirtækja, ríkis, sveitarfélaga, stofnana þeirra og fyrirtækja í opinberri eigu. Þá verða öll heildsölu- og peningamarkaðsinnlán ekki lengur flokkuð sem tryggðar innstæður í skilningi laganna.

Frumvarpið hefur þegar farið í gegnum fyrstu umræðu á Alþingi og er nú til umfjöllunar í viðskiptanefnd. Stefnt er að því að afgreiða málið fyrir lok yfirstandandi þings. Nýju lögin eiga að taka gildi 1. janúar 2011. Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, segir að allsherjartrygging á innstæðum, sem er til staðar í formi yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar frá 3. febrúar 2009, verði áfram í gildi þrátt fyrir að nýju lögin taki gildi.

_____________________________

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið blaðið á pdf-formi hér á vefnum og þeir sem ekki hafa lykilorð geta sótt um það hér .