Viðskiptaráð Íslands fagnar frumvarpi allsherjar- og menntamálanefndar til laga um útlendinga og telur það mjög til bóta.

Með frumvarpinu er lagt til að Vinnumálastofnun verði heimilt að óska eftir upplýsingum frá atvinnurekanda, t.d. um hvort sérfræðiþekking útlendingsins hafi nýst í því starfi sem hann var ráðinn til að gegna, þegar lagt er mat á hvort skilyrði framlengingar atvinnuleyfis séu uppfyllt.

Að mati Viðskiptaráðs er þó heppilegast að fyrirtæki meti það sjálf hvort starfskraftar tiltekinna sérfræðinga nýtist þeim. Viðskiptaráð telur klausu frumvarpsins um auknar heimlidir Vinnumálastofnunar óþarfar og leggst ráðið gegn því að heimild þessi verði lögfest.

Í umsögn sem ráðið skilaði segir að breytingarnar sem frumvarpið kveði á um séu til mjög bóta. Samkeppni um erlenda sérfræðinga takmarkist ekki við landamæri og því sé mikilvægt að bæta stöðu þeirra hér á landi.

Miklu máli skiptir fyrir alþjóðleg fyrirtæki að fá sérhæft starfsfólk til starfa með skjótum hætti. Seinlegt afgreiðsluferli dvalar- og atvinnuleyfa getur leitt til þess að Ísland verði undir í samkeppni um erlenda sérfræðinga. Ákvæði frumvarpsins sem miða að skilvirkara umsóknarferli séu því mikið fagnaðarefni.