Stjórn VÍS skipa þau Benedikt Jóhannesson, stjórnarformaður, Guðrún Þorgeirsdóttir, Helga Jónsdóttir, Ingi Rafn Jónsson og Magnús Scheving Thorsteinsson. Varastjórn VÍS skipa Ásbjörg Kristinsdóttir, Brynja Dögg Steinsen, Guðmundur Pálsson, Jón Sigurðsson og Óskar Hauksson.

Þetta kemur fram í nýútgefinni ársskýrslu VÍS. Stjórn og varastjórn VÍS uppfylla því ákvæði laga um kynjahlutföll í stjórnum hlutafélaga sem taka eiga gildi 1. september 2013 og hefur verið svo með skipan stjórnar frá árinu 2010.