Viðskiptaráð telur að þrátt fyrir verulega fjárfestingu af hálfu ríkissjóðs þá réttlæti heildarávinningur af breytingum á lögum um lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins útgjöldin.

Fagnar ráðið því að loksins sé stigið það srkef að samræma lífeyriskerfi opinberra starfsmanna og starfsmanna á almennum vinnumarkaði.

Alvarlegar afleiðingar ef gengur ekki

Segja þeir jafnframt að ef frumvarp þess efnis nái ekki fram að ganga hafi það alvarlegar afleiðingar fyrir ríkissjóð og stöðugleika á vinnumarkaði

Í fréttatilkynning Viðskiptaráðs vísa þeir í skoðanakönnun sem þeir létu gera þar sem 89% svarenda sögðu að lífeyrisréttindi launþega ættu að vera sambærileg hjá hinu opinbera og á almennum vinnumarkaði.

Munur skapar neikvæða hvata

„Munurinn á réttindum skapar neikvæða hvata gagnvart tilfærslu starfsfólks á milli opinbera og almenna vinnumarkaðarins,“ segir í fréttinni.

„Til að þessir tveir hlutar hagkerfisins styðji sem best hvor við annan er því mikilvægt að starfsfólk geti fært sig á milli þeirra án þess að lífeyrisréttindi breytist.

Stjórn LSR og stjórn Brúar hafa boðað hækkun mótframlags launagreiðanda og munu lífeyrisiðgjöld opinberra starfsmanna þá nema samtals allt að 20,8% af heildarlaunum. Fyrirséð er því að markmið um jöfnun lífeyrisréttinda verður enn fjarlægara verði frumvarp þetta ekki samþykkt fyrir lok þessa árs.

Hækkun mótframlaga leiðir til átaka

Til viðbótar við slæm áhrif á stöðu ríkissjóðs vegna hækkunar á mótframlagi lífeyrisiðgjalda mun hækkunin einnig hafa áhrif á almennan vinnumarkað.

Forsendur kjarasamninga á almennum vinnumarkaði koma til endurskoðunar í febrúar 2017. Hækkun á mótframlagi ríkis og sveitarfélaga mun óhjákvæmilega leiða til átaka í tengslum við þá endurskoðun og aukinna krafna um jöfnun lífeyrisréttinda.“