Stjórn VR hefur samþykkt að leggja fram tillögu á aðalfundi N1 um að allir starfsmenn N1 fái sömu launahækkun og forstjóri félagsins fékk en laun hans voru 5,8 milljónir króna á mánuði á síðasta ári og hækkuðu þau um 20,6% á milli ára eða um rúma milljón krónur á mánuði.

Með hliðsjón af ársreikningi N1 fyrir síðasta rekstrarár má gróflega áætla að ef laun allra starfsmanna hefðu hækkað um 20,6% hefðu launa- og starfsmannagjöld aukist 938 milljónir króna. Ennfremur að hagnaður félagsins eftir skatta hefði orðið tæplega 39% minni eða um 1,3 milljarðar í stað tæplega 2,1 milljarðs.

„Sem hluthafi í N1 getur stjórn VR ekki setið aðgerðalaus hjá þegar N1 greiðir forstjóra fyrirtækisins 20,6% hækkun í kjörum milli ára,“ segir á vef VR en stéttarfélagið er beinn hluthafi í N1.

Tillagan er svohljóðandi:

„Aðalfundur N1, haldinn mánudaginn 19. mars að Dalvegi 10-14 Kópavogi, ályktar að öllum starfsmönnum N1 skuli tryggð sama kjarahækkun og forstjóri félagsins fékk á árinu 2017. Laun forstjóra voru á árinu 2017 70,4 m.kr., eða 5,8 m.kr. á mánuði, og hækkuðu þau um 20,6% milli áranna 2016 og 2017.“

Þá segir á vef VR að ef fyrirtækið jafn vel rekið og af er látið og í svo miklum blóma að það telji sér fært að skammta þeim sem stýrir því svo vel væri eðlilegt að það umbuni þeim með sama hætti sem vinna verkin.

„Stærstu eigendur N1 eru lífeyrissjóðir launafólks og það hlýtur því að vera eðlileg krafa að einmitt hið duglega launafólk sem starfar hjá N1 skuli einnig njóta ávaxtanna, sérstaklega þegar svo vel gengur í starfsemi fyrirtækisins að það telur sæmandi að greiða forstjóranum sambærileg laun og launahæsta bankastjóra landsins.“