Eins og venja er á nýársdag sæmdi forseti Íslands ellefu Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við athöfn á Bessastöðum í dag.

Þeir sem voru heiðraðir eru:

1. Bjarni Ásgeir Friðriksson íþróttamaður og ólympíuverðlaunahafi, Reykjavík, riddarakross fyrir íþróttaafrek og framlag til íþróttafræðslu

2. Björgvin Magnússon fyrrv. skólastjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu skátahreyfingar og æskulýðs

3. Bolli Þór Bollason ráðuneytisstjóri, Garðabæ, stórriddarakross fyrir störf í opinbera þágu

4. Erlingur Gíslason leikari, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar leiklistar og menningar

5. Inga Lára Baldvinsdóttir sagnfræðingur, Eyrarbakka, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar ljósmyndasögu og varðveislu menningararfleifðar

6. Ingibjörg Þorbergs tónskáld, Kópavogi, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar tónlistar

7. Margrét Eybjörg Margeirsdóttir félagsráðgjafi, Reykjavík, riddarakross fyrir störf að félags- og velferðarmálum

8. Ólafur Elíasson myndlistarmaður, Hellerup, Danmörku, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar og alþjóðlegrar myndlistar

9. Sigríður Pétursdóttir bóndi, Ólafsvöllum á Skeiðum, riddarakross fyrir störf að ræktun íslenska fjárhundsins

10. Sigrún Eldjárn rithöfundur og myndlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar barnamenningar

11. Þórir Stephensen fyrrv. dómkirkjuprestur og staðarhaldari í Viðey, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu kirkju, sögu og samfélags

Þetta kemur fram í tilkynningu frá skrifstofu forseta.