Íslensk erfðagreining greindi frá því í dag að stefnendur hafi að eigin frumkvæði fallið frá málsóknum gegn móðurfélagi þess, deCODE genetics Inc., og ákveðnum stjórnendum þess sem höfðaðar voru í september og október síðastliðnum. Dómari hefur því fellt málin niður að ósk stefnenda. Engar greiðslur voru inntar af hendi til stefnenda í þessu sambandi segir í tilkynningu félagsins.