Gengið hefur verið endanlega frá kaupum Kviku banka hf. á Öldu sjóðum hf. Tilkynnt var um undirritun kaupsamnings vegna Öldu í byrjun ágúst, en nú hefur verið fallið frá öllum fyrirvörum og Alda verður dótturfyrirtæki Kviku í byrjun næstu viku. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Kvika banki hefur sent frá sér.

„Þá hefur Hannes Frímann Hrólfsson látið af störfum sem forstjóri Virðingar og tekið við sem framkvæmdastjóri eignastýringar Kviku," segir í tilkynningunni. „Hannes hefur starfað á fjármálamarkaði í hátt í tvo áratugi. Hann hefur verið forstjóri Virðingar frá 2014 en áður starfaði hann hjá Auði Capital frá 2012, lengst af sem forstjóri. Fyrir þann tíma starfaði Hannes hjá Arion banka og var framkvæmdastjóri og meðstofnandi Tinda verðbréfa.

Kvika gerði nýverið samninga um kaup á öllu hlutafé í Virðingu hf. og mun Virðing sameinast Kviku á næstu vikum. Þar til sameiningin hefur gengið í gegn mun Íris Arna Jóhannsdóttir, sem verið hefur yfirlögfræðingur Virðingar, gegna starfi forstjóra Virðingar. Með kaupunum á Virðingu og Öldu verður Kvika einn öflugasti aðili í eignastýringu á Íslandi með um 280 milljarða króna í stýringu."