Fanney Birna Jónsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarritstjóri Kjarnans en hún mun hefja störf í dag. Frá þessu er greint á Kjarnanum en Fanney Birna mun sömuleiðis koma inn í eigendahóp Kjarnans.

Fanney Birna er fyrrverandi aðstoðarritstjóri Fréttablaðins og hefur undanfarið ár stýrt pólitíska þjóðmálaumræðuþættinum Silfrinu á RÚV ásamt Agli Helgasyni. Fanney Birna mun áfram stýra Silfrinu ásamt Agli.

Fanney Birna verður þriðji starfsmaðurinn sem bætist við hjá Kjarnanum á skömmum tíma en Bára Huld Beck blaðamaður og Grettir Gautason, verkefna- og sölustjóri hófu einnig nýverið störf á miðlinum.

Á Kjarnanum er haft eftir Fanneyju Birnu að hún sé spennt fyrir því að takast á við verkefnið og þróa Kjarnann áfram með því öfluga fólki sem þar er fyrir. „Íslenskt samfélag þarfnast nauðsynlega sterkra og óháðra fjölmiðla. Á tímum þar sem blaðamönnum fer fækkandi og almannatenglum hratt fjölgandi, ásamt því að valdamestu menn samfélagsins veigra sér ekki við því að vega að heiðri og þannig trausti fjölmiðla, er beittur, gagnrýninn og aðhaldssamur fréttaflutningur ómetanlegur. Ég fagna tækifærinu til þess að fá að leggja mitt lóð á vogarskálarnar í þessum efnum hjá Kjarnanum, sem hefur sýnt að miðillinn er til þess gerður að veita bæði stjórnvöldum og stórfyrirtækjum það aðhald sem er nauðsynlegt í okkar lýðræðissamfélagi.“