Björgunaraðgerðir bandaríska fjármálaráðuneytisins til handa húsnæðislánasjóðunum Fannie Mae og Freddie Mac fresta aðeins vandamálinu í stað þessa að leysa það. Þetta er mat fyrrum seðlabankastjóra vestanhafs. Bloomberg segir frá þessu.
Í raun verður það fyrsta hlutverk nýs forseta að taka við því verkefni að ákveða uppbyggingu húsnæðislánasjóðanna til langs tíma. William Poole, fyrrum seðlabankastjóri í St. Louis, segir að hlutafélagsuppbygging sjóðanna sé óásættanleg fyrir skattgreiðendur. Poole spáði því jafnframt að skattgreiðendur þyrftu að standa straum af allt að því 300 milljörðum dala afskriftakostnaði vegna yfirtökunnar.
Henry Paulson fjármálaráðherra hefur sagt að hið opinbera þurfi að ákveða hvaða hlutverk það á spila á húsnæðismarkaði. „Samstaða er um að núverandi fyrirkomulag gengur ekki upp,“ segir Paulson.
Viðmælendur Bloomberg segja að ekki sé um varanlega lausn að ræða, heldur aðeins tímabundna. Líftími sjóðanna hafi verið lengdur um 15 mánuði, en eftir það þurfi að grípa til annarra aðgerða.