Farþegafjöldi Finnair Group, sem FL Group á um 30% hlut í, jókst um 6,3% í nóvember frá sama mánuði í fyrra. Heildarfjöldi farþega í nóvember s.l. var 619.630.

Heildarflug Finnair jókst um 27,3%. Sé aukningin mæld í kílómetrum á farþega jókst hún um 22% milli ára. Vöruflutningar jukust einnig hjá félaginu um 12 frá sama tíma í fyrra.