Farþegum í áætlunarflugi Icelandair fjölgaði um 11,7% í janúar 2005 í samanburði við sama mánuð 2004. Þeir voru rúm 72 þúsund, en tæp 65 þúsund í fyrra. Sætanýting var nánast sú sama og í janúar í fyrra eða 59,1%. Farþegum Flugfélags Íslands í innanlandsflugi fjölgaði um 9,3% í janúar og voru tæp 23 þúsund.

Flugleiðir-Frakt fluttu 6,9% fleiri tonn af frakt og pósti í janúar í ár en í sama mánuði í fyrra.

Í janúar voru fartímar ("block-hours", þ.e. sá tími sem flugvél er í notkun, frá því hún fer frá brottfararhliði og þar til hún stöðvar aftur við brottfararhlið) hjá Loftleiðum-Icelandic 3,8% færri en í sama mánuði 2004.