Farþegum í áætlunarflugi Icelandair fjölgaði um 16,8% í nóvember. Þeir voru tæp 82 þúsund í nóvember í ár, en 70 þúsund í nóvember í fyrra. Sætanýting var 4,8 prósentustigum betri í nóvember í ár en í fyrra. Framboðið var 11,9% meira en í nóvember 2003, en seldir sætiskílómetrar voru 20,4% fleiri.

Frá áramótum eru farþegar Icelandair 17,9% fleiri en á fyrstu ellefu mánuðum síðasta árs. Sætanýting félagsins hefur aukist um 5,5 prósentustig, - framboð var 12,7% meira en á síðasta ári, en salan 21,6% meiri.

Farþegum Flugfélags Íslands í innanlandsflugi fjölgaði um 10,7% í nóvember. Frá áramótum hefur farþegum innanlands fjölgað um 14,1% miðað við sama tímabil 2003.

Flugleiðir-Frakt fluttu 31,4% fleiri tonn í nóvember en í nóvember 2003 og hafa flutt 27,4% fleiri tonn á fyrstu ellefu mánuðum ársins en á sama tíma í fyrra.

Í nóvember voru fartímar ("block-hours", þ.e. sá tími sem flugvél er í notkun, frá því hún fer frá brottfararhliði og þar til hún stöðvar aftur við brottfararhlið) hjá Loftleiðum-Icelandic 23,6% fleiri en í sama mánuði á síðasta ári. Á fyrstu ellefu mánuðum ársins eru fartímar hjá Loftleiðum-Icelandic 66,5% fleiri en í fyrra.