Samkvæmt tölum frá Keflavíkurflugvelli fóru tæplega 1,7 milljónir farþega um völlinn á nýliðnu ári sem er um 16,7% fækkun á milli ára.

Þetta kemur fram á vef Ferðamálastofu í dag en alls voru farþegar 1.658.419 á árinu 2009, samanborið við 1.991.338 farþega árið 2008.

Fækkun var í öllum mánuðum ársins að desember undanskyldum þegar farþegafjöldinn var nánast sá sami.

Á vef Ferðamálastofu segir að líkt og verið hefur aðra mánuði ársins má búast við að samdráttur í ferðum Íslendinga vegi hlutfallslega hærra í þessum tölum en nemur fækkun í heimsóknum erlendra gesta. Nú er verið að vinna úr tölum Ferðamálastofu fyrir desember en í þeim má sjá skiptingu eftir þjóðerni og þá mun heildarfjöldi gesta til landsins í fyrra jafnframt liggja fyrir.

Nánari skiptingu á farþegum um Keflavíkurflugvöll má sjá á vef Ferðamálastofu .