Farþegum Iceland Express fjölgaði um 35% í júlí samanborið við sama mánuð í fyrra. Farþegar í júlí voru tæplega 80 þúsund. Í tilkynningu frá félaginu segir að farþegum hafi einnig fjölgað umtalsvert í ágúst.

Farþegum fjölgaði á flesta áfangastaði Iceland Express. Segir að New York hafi verið sérstaklega vinsæll áfangastaður. Ákveðið hefur verið að taka upp áætlunarflug til Boston og Chicago næsta sumar.