Farþegum í millilandaflugi Icelandair fjölgaði um 21.8% í mars í ár í samanburði við mars á síðasta ári. Þeir voru tæplega 106 þúsund í ár en rúm 87 þúsund í fyrra. Sætanýting var 8,5 prósentustigum betri, framboð var 10,7% meira, en sala 24,2% meiri.

Á fyrstu þremur mánuðum ársins hefur farþegum Icelandair fjölgað um 14,2% milli ára, úr 218 þúsundum í fyrra í 249 þúsund í ár. Sætanýting hefur aukist um 3,7 prósentustig, en framboðið er 10% meira en á fyrsta ársfjórðungi 2004.

Farþegum í innanlandsflugi Flugfélags Íslands fjölgaði um 9,8 % í samanburði við mars á síðasta ári, og voru rúm 27 þúsund. Á fyrstu þremur mánuðum ársins eru þeir 6,4% fleiri en í fyrra.

Flutningar hjá Icelandair Cargo voru 0,9% meiri í mars í ár en í fyrra og hafa aukist um 3,7% á fyrstu þremur mánuðum árins.

Fartímar (block-hours) hjá Loftleiðum-Icelandic voru 7,3% fleiri en á sama tíma í fyrra og á fyrsta ársfjórðungi voru fartímarnir 3,8% færri en í fyrra.