Farþegar Icelandair í október voru tæplega 125 þúsund og fjölgaði um 13,2% frá því í október í fyrra en þá voru þeir 110 þúsund. Sætanýting félagsins í mánuðinum var 77,7% og hækkaði um 3 prósentustig frá fyrra ári. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins til Kauphallarinnar.

Frá áramótum hefur farþegum Icelandair fjölgað um 14,4% og voru 1,341.705 talsins. Sætanýting hefur batnað um 2,5 prósentustig og var 78,2% á fyrstu tíu mánuðum ársins.

Farþegum Flugfélags Íslands í innanlandsflugi fækkaði um 0,8% í október og voru tæplega 30 þúsund. Þeim hefur fjölgað frá áramótum um 3,0%

Fluttum tonnum Icelandair Cargo fjölgaði um 2,5% frá fyrra ári og voru
3.437 í mánuðinum. Þeim hefur fjölgað á fyrstu tíu mánuðum ársins um 0,2%

Fartímum (block-hours) í alþjóðlegu leiguflugi Loftleiða-Icelandic fjölgaði um 54% í október og um 26,6% frá áramótum.

Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair Group segir: "Það er mjög ánægjulegt að sjá mjög mikla fjölgun farþega í október og það sem af er árinu. Við höfum aukið sætaframboðið verulega og farþegarnir láta ekki á sér standa. Bókunarútlitið fyrir tvo síðustu mánuði ársins er sömuleiðis gott."