Icelandair flutti tæplega 130 þúsund farþega í október sl., sem er 27% fjölgun á milli ára. Þá hefur farþegum Icelandair fjölgað um 14% á milli ára fyrstu 10 mánuði ársins.

Þetta kemur fram í mánaðarlegum flutningstölum frá Icelandair Group en heildarfjöldi farþega hjá Icelandair það sem af er ári nemur tæplega 1,3 milljón, samanborið við rúma 1,1 milljón farþega á sama tíma í fyrra.

Farþegafjöldi Icelandair sló met í september sl. þegar félagið flutti rúmlega 146 þúsund farþegar sem var mesta aukning í einum mánuði á þessu ári auk þess sem félagið hefur aldrei flutt jafn marga farþega í september áður.

Farþegum Flugfélags Íslands fjölgar í fyrsta sinn á þessu ári

Farþegum Flugfélags Íslands, sem jafnframt er í eigu Icelandair Group, fjölgaði á milli mánaða í október, í fyrsta sinn á þessu ári. Þá flutti félagið um 30.500 þúsund farþega sem er 7% fjölgun farþega á milli ára. Farþegum Flugfélags Íslands hefur þó fækkað um 7% á milli ára fyrstu tíu mánuði ársins. Í lok október hafði félagið flutt rúmlega 290 þúsund farþega, samanborið við tæplega 314 þúsund farþega á sama tíma í fyrra.

Fraktflug á vegum samstæðunnar heldur einnig áfram að dragast saman. Í október dróst fraktflug saman um 5% á milli ára en þannig nemur samdrátturinn í fraktflugi um 4% það sem af er ári.

Þá hefur nýting hótelherbergja í eigu samstæðunnar dregist örlítið saman á milli ára. Í október sl. voru um 9.800 þúsund gistinætur seldar, samanborið við rúmlega 10.100 þúsund gistinætur árið áður, sem þýðir 3% fækkun á milli ára. Framboð hótelherbergja stendur þó nánast í stað á milli ára. Sala hótelherbergja í eigu samstæðunnar hefur þannig lækkað um 2% á milli ára það sem af er ári.

Nýting flugflota í eigu Icelandair Group jókst lítillega í október á milli ára eða tæp 2%. Þannig nam nýting á flugflotanum rúmlega 96% samanborið við rúmlega 94% í október í fyrra. Hér er átt við allar vélar í eigu samstæðunnar, meðal annars vélar sem leigðar eru út á vegum Lofteiða Icelandic. Nýting flugflotans hefur aukist um 1,2% á milli ára fyrstu níu mánuði ársins.