Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um tæp 30% í apríl miðað við sama tíma í fyrra, úr tæpum 119 þúsund farþegum árið 2005 í tæplega 154 þúsund farþega nú.

Fjölgun farþega til og frá Íslandi nemur tæpum 34% milli ára, en farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fjölgaði um rúm 7%.