Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um tæp 10% í ágúst miðað við sama tíma í fyrra, úr tæpum 245 þúsund farþegum árið 2005 í rúmlega 269 þúsund farþega nú.

Fjölgun farþega til og frá Íslandi nemur tæpum 15% milli ára, en farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fækkaði um rúm 14%. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu FLE.