Síðan Wow air hóf áætlunarflug til Boston í Bandaríkjunum fyrr á þessu ári hefur fjöldi farþega sem fljúga frá borginni til Íslands aukist um 130%. Eru þá ekki meðtaldir tengifarþegar sem halda áfram með vélum félagsins til áfangastaða í Evrópu. Á sama tíma hafa fargjöld almennt lækkað á flugleiðinni um 30%. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Wow air.

Bæði Icelandair og Wow air starfrækja flugleiðir milli Boston og Keflavíkur. Það sem af er ári er heildarfjöldi farþega með Wow air frá Bandaríkjunum 72 þúsund farþegar. Fram kemur í tilkynningunni að miðað við tölur um meðalkortaveltu ferðamanna þá megi ætla að þessi aukning hafi skilað nærri milljarði íslenskra króna í þjóðarbúið á þeim tíma sem Wow air hefur flogið til Boston.

„Það er frábært að geta haldið áfram að lækka flugverð eins og raun ber vitni líka til Norður-Ameríku eins og við höfum þegar gert til áfangastaða okkar í Evrópu. Það er augljóst hvað samkeppni er mikilvæg og skilar sér beint til neytenda. Byggt á þessum góðu viðtökum mun WOW air rúmlega tvöfalda sætaframboð sitt til og frá Norður-Ameríku á næsta ári með tilkomu nýrra áfangastaða“ segir Skúli Mogensen stofnandi og forstjóri Wow air.