Ódýrustu fargjöldin hjá EasyJet og Icelandair frá Keflavík til London í lok október eru um fjörutíu prósentum lægri nú en þau voru á sama tíma í fyrra. Fargjöld Icelandair til Kaupmannahafnar og Oslóar hafa lækkað álíka mikið, en verðlækkun hjá WOW air er minni.

Þetta kemur fram á vefsíðunni Túristi.is , sem gerir verðkannanir af þessu tagi í hverjum mánuði.

Í fyrra var ódýrasti miðinn til London og til baka í lok október rúmlega 40 þúsund krónur ef pantað var með fjögurra vikna fyrirvara. Nú er slíkur miði á tæplega 25 þúsund. Fargjöldin fyrir ferðalag til London um jólin eru einnig mun lægri nú en þau voru í fyrra. Í fyrra var ódýrast að bóka með 12 vikna fyrirvara hjá Icelandair, eða rúmlega 48 þúsund krónur, en dýrast með EasyJet, tæplega 62 þúsund krónur. Nú er verðið hjá báðum flugfélögunum rúmlega 41 þúsund krónur.