Yfirtökutilboð Fjárfestingarfélagsins Atorku hf. til hluthafa í Sæplasti hf. rann út klukkan 16 í gær. Eignarhlutur Fjárfestingarfélagsins Atorku hf. í Sæplasti hf. er að yfirtökutímanum liðnum 132.383.668 krónur að nafnverði eða sem nemur 93,19% af heildarhlutafé og 97,83% af virku hlutafé í Sæplasti hf.
Stjórn Fjárfestingarfélagsins Atorku hf. hefur lýst því yfir að hún muni fara fram á afskráningu hlutabréfa Sæplasts hf. úr Kauphöll Íslands hf. að yfirtökutímanum liðnum, þar sem félagið uppfyllir ekki lengur skilyrði Kauphallar Íslands hf. um dreifingu hlutafjár. Afskráningardagur hefur ekki enn verið ákveðinn en tilkynnt verður um hann síðar.