Farmers Market hlaut í gær útflutningsstyrk DHL á Íslandi. Styrkurinn hljóðar upp á 500 þúsund krónur. Innifalið er í styrknum ráðgjöf við flutning og tollamál. Með styrknum er horft til þess að letta undir með ungum og efnilegum fatahöfnnuðum og styrkja þá með samstarfi við Reykjavik Fashion Festival, að því er segir í tilkynningu.

Atli Freyr Einarsson, framkvæmdarstjóri DHL Express á Íslandi, afhenti styrkinn í gær.

Þetta er annað skiptið sem DHL á Íslandi veiti styrkinn. Í fyrra fékk hann JÖR by GUÐMUNDUR JÖRUNDSSON.