Icelandair, WOW air og Easyjet rukka öll meira fyrir flugmiðana til Lundúna í Bretlandi fyrstu vikuna í september í ár en þau hafa gert frá árinu 2012. Þetta kemur fram í nýrri verðkönnun Túrista, sem hefur gert mánaðarlegar kannanir á verði flugmiða til Lundúna, Kaupmannahafnar og Óslóar síðustu þrjú ár.

Séu farmiðar til borgarinnar bókaðir núna fyrir vikuna 31. ágúst til 6. september næstkomandi sést að Easyjet er með lægsta verðið, 36.513 krónur, en Icelandair það hæsta, 63.545 krónur. Flug með Wow air kostar 42.895 krónur.

Farmiðarnir hækka allir í verði frá sama tíma í fyrra. Hjá Easyjet nemur hækkunin 5.500 krónum, hjá Wow air nemur hækkunin tæpum 12.000 krónum en hjá Icelandair hækkar verðið um næstum 25.000 krónur milli ára.

Nánar má lesa um niðurstöður verðkönnunar Túrista hér .