Farþegafjöldi easyJet nærri því tvöfaldaðist milli ára á sumarmánuðinum. Mest varð farþegaukningin í júní mánuði en þá fóru 103% fleiri farþegar með flugfélaginu, en árið áður.

Fjöldi fluga easyJet um Keflavíkurflugvöll og hefur tvöfaldast á sumarmánuðinum milli ára og hefur sætanýtingin verið mjög góð, en hún nam 90% í júlí.

Í maí fóru 18.153 farþegar með flugi easyJet um Keflavíkurflugvöll í samanburði við 9634 árið áður. Í júní fóru 18.469 farþegar með flugfélaginu, í samanburði við 9112 árið áður. Loks í júlí fóru 17.740 farþegar með flugfélaginu samanborið við 9614 farþega árið.