WOW air flutti 149.495 farþega til og frá landinu í nóvember eða um 164% fleiri farþega en í nóvember árið 2015. Þá var sætanýting WOW air 87% í nóvember í ár sem er sú sama og á síðasta ári, þrátt fyrir 164% aukningu á sætaframboði í nóvember. Framboðnum sætiskílómetrum fjölgaði um 215% í nóvember frá því á sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.

Wow air hefur flutt 1.502 þúsund farþega það sem af er ári og er það 125% aukning farþega á sama tímabili frá síðasta ári.

„Nóvembermánuður er alltaf að verða vinsælli ferðamánuður meðal ferðamanna sem koma til Íslands. Samkvæmt Ferðamálastofu hefur fjöldi ferðamanna ríflega sexfaldast frá árinu 2010.  Aldrei hafa fleiri ferðamenn flogið með WOW air til Íslands í nóvember en 164% fleiri flugu með flugfélaginu í síðasta mánuði en árið áður. Af þeim þjóðum sem komu til landsins í nóvember eru Bretar fjölmennastir eða 27,8% af heildarfjölda en fast á eftir fylgdu Bandaríkjamenn sem voru 23,2% af heildarfjölda,“ segir að lokum í tilkynningunni.