Farþegafjöldi Wow air hefur meira en tvöfaldast milli ára, en í júní í ár flutti félagið 168.451 farþega en á sama tíma í fyrra var fjöldinn 82.969 farþegar. Er þetta fjölgun sem nemur 103%.

Á sama tíma og mikil aukning var á framboði flugferða, jókst sætanýtingin einnig, eða um þrjú prósentustig miðað við júní í fyrra. Fór hún í 86% í júní síðastliðnum þrátt fyrir að á þessum tíma hafi orðið 97% aukning í sætaframboði.

Bara í júnímánuði síðastliðnum hóf félagið áætlunarflug til San Fransisco, Los Angeles, Frankfurt og Nice. Fjölgaði framboðnum sætiskílómetrum um 125% í júní miðað við sama tíma í fyrra.

Fystu sex mánuði ársins 2015 var heildarfjöldi farþega 260.060 en fyrstu sex mánuði þessa árs var heildarfjöldinn 546.004 svo fjölgunin nemur 110,7%.