Farþegaflug jókst töluvert í júlí eftir að ferðatakmörkunum í Evrópu var aflétt um miðjan júní. COVID-19 faraldurinn hafði þó áfram mikil áhrif á starfsemi félagsins en fraktflutningar drógust mun minna saman en farþegaflug á tímabilinu. Þetta kemur fram í mánaðarlegum flutningatölum fyrir júlímánuð sem Icelandair Group birti í Kauphöll í dag.

Heildarfjöldi farþega hjá Icelandair nær fjórfaldaðist á milli mánaða og jókst úr um 18.500 í júnímánuði í rúmlega 73.200 í júlí. Fjöldi farþega dróst saman um 87% frá júlí í fyrra. Tengiflug milli Evrópu og Norður Ameríku var í algjöru lágmarki í júlí vegna ferðatakmarkana í Bandaríkjunum og á ytri landamærum Schengen. Fjöldi farþega til Íslands var um 58.200 í júlí og um 13.300 frá Íslandi.

Heildarframboð minnkaði um 89% á milli ára. Fjöldi farþega hjá Air Iceland Connect var tæplega 15 þúsund í júlímánuði og fækkaði um 48% á milli ára. Framboð í innanlandsflugi minnkaði um 64%.

Seldir blokktímar í leiguflugstarfsemi félagsins drógust saman um 81% á milli ára í júlí en hafa dregist saman um tæp 40% á milli ára það sem af er ári. Flutningastarfsemi félagsins gekk samkvæmt áætlun í júlímánuði og drógust fraktflutningar mun minna saman en farþegaflug eða um 15% á milli ára. Samdrætti í farþegaflugi hefur á liðnum mánuðum verið mætt með auknum ferðum fraktvéla félagsins, bæði til Bandaríkjanna og Evrópu.

„Eftir að ferðatakmörkunum í Evrópu var aflétt útvíkkuðum við flugáætlun okkar verulega í júlímánuði. Farþegafjöldi jókst umtalsvert í kjölfarið þó enn sé töluverður samdráttur á milli ára vegna kórónuveirufaraldursins,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair Group, í fréttatilkynningu.

„Við höfum lagt höfuðáherslu á að viðhalda sveigjanleika til þess að takast á við áframhaldandi óvissu og geta brugðist hratt við breytingum á mörkuðum í því síbreytilega ástandi sem við stöndum frammi fyrir. Við erum stöðugt að meta stöðuna í takt við aðstæður, bæði hvað varðar þróun eftirspurnar og breytingar á ferðatakmörkunum, með það að markmiði að mæta eftirspurn á hverjum tíma og tryggja öruggar flugsamgöngur til og frá landinu nú og til frambúðar.“