Fyrstu tíu mánuði ársins flugu rétt rúmlega 2,4 milljónir farþega til og frá Keflavík. Það eru um þrjátíu þúsund fleiri en fóru um Flugstöð Leifs Eiríkssonar allt síðasta ár.

Árið 2012 var metár í farþegaumferð á Keflavíkurflugvelli og jókst hún um 12,7 prósent frá 2011. Í fyrra fjölgaði farþegum hlutfallslega mun meira hér á landi en á stóru flugvöllum Norðurlanda eins og Túristi.is greindi frá.

Samkvæmt upplýsingum frá Isavia, rekstraraðila flugvallarins í Keflavík,er gert ráð fyrir að um 2,75 milljónir farþega fari um völlinn í ár sem jafngildir aukningu um 15,5 prósent á milli ára.