Gamanið tók að kárna um borð í flugvél Ryanair frá Rabat í Marokkó á leið til Parísar þegar vélin varð að millilenda á Spáni með veikan farþega.

Þegar vélin hélt síðan áleiðis til Parísar var klukkan orðin of margt og ekki fékkst heimild til lendingar. Vélinni var því beint til borgarinnar Nantes í vesturhluta Frakklands.

Þar tók við margra klukkustunda bið og það var þá sem upp úr sauð þegar vísa átti farþegum frá borði og finna gistingu handa þeim í Nantes. Ferð sem átti að taka tvo og hálfan tíma stefndi í sólarhrings seinkun þegar vísa átti farþegunum frá borði.

Farþegarnir, sem voru um 170 talsins og flestallt Frakkar, neituðu að fara frá borði og tóku áfengi og annan varning úr söluvögnum ófrjálsri hendi og héldu áhöfninni í gíslingu.

Starfsfólk flugfélagsins sagði farþegana hafa látið eins og villidýr en í viðtali við fjölmiðla sagði einn farþeganna að fólk hafi hreinlega verið svangt, þyrst, þreytt og pirrað vegna þess að engar upplýsingar höfðu borist frá Ryanair varðandi gang mála.

Eftir uppreisnina voru farþegar fluttir á hótel og ekið síðan til Parísar með rútu daginn eftir. Stuff.co.nz segir frá málinu á vefsíðu sinni í dag .