Gengi hlutabréfa Icelandair Group hefur hækkað um 3,53% í tæplega 300 milljón króna viðskiptum þegar þetta er ritað. Kaupvirði bréfa Icelandair nú 16,05 krónur. Bréfin hafa verið í talsverðum hækkunarfasa á seinustu vikum.

Í morgun birti félagið farþegatölur þar sem kom fram að í apríl flutti Icelandair 273 þúsund farþega og voru þeir 29% fleiri en í apríl á síðasta ári. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu. Framboðsaukning á milli ára nam 25% og sætanýting var 82,6% og jókst um 2 prósentustig samanborið við sama mánuði í fyrra og hefur aldrei verið hærri í apríl.

Verð á hverju bréfi Icelandair nam 13,540 krónur fyrir um mánuði síðan og hefur gengi bréfanna nú hækkað um 18,5 prósentustig á mánuði.