Heildarfjöldi farþega sem fóru um Keflavíkurflugvöll í febrúar var um 508.183. Það er 6,5% minna en á sama tíma í fyrra. Í farþegaspá fyrir árið 2019, sem gefin var út í janúar, var gert ráð fyrir að 473.062 farþegar færu um Keflavíkurflugvöll. Farþegaspá Isavia gerði ráð fyrir 13% samdrætti í febrúarmánuði. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Isavia .

Spáð var að fjöldi íslenskra ferðamanna í febrúar yrði 35.873 en í raun voru þeir 40.575. Það er 0,9% aukning frá fyrra ári og 13,1% meira en farþegaspáin gerði ráð fyrir. Ef horft er til janúar og febrúar í ár hefur íslenskum ferðamönnum fjölgað um 2,4% á þessum tímabili frá því sem var á sama tíma í fyrra, en spáð var að þeim myndi fækka um 3,8 prósent.

Erlendir ferðamenn voru 149.004 í febrúar en því var spáð að þeir yrðu 133.228. Raunfjöldinn er 6,9% minni en á sama tíma í fyrra en 11,8% meiri en spáð var. Í janúar og febrúar hefur erlendum ferðamönnum fækkað um 6,4% frá sama tímabili í fyrra, en því var spáð að þeim myndi fækka um 8,9 prósent. Er það því 2,8% frá spá.

Komu- og brottfararfarþegum hefur fækkað um 3,8% í janúar og febrúar frá því sem var í fyrra en farþegaspá Isavia gerði ráð fyrir að þeim myndi fækka um 8,9%. Skiptifarþegum hefur á sama tímabili fækkað um 11,9% frá í fyrra, en það er nokkuð meira en þau 6,6 prósent sem gert var ráð fyrir í farþegaspánni.