Í desember flutti Icelandair 263 þúsund farþega og voru þeir 12% fleiri en í desember árið 2017. Framboðsaukning á milli ára nam 9% og sætanýting var 79,6% samanborið við 76,8% árið á undan.

Farþegar Air Iceland Connect, áður Flugfélags Íslands voru um 19 þúsund og fækkaði um 17% á milli ára. Um miðjan maí í ár hætti félagið flugi til Belfast og Aberdeen og einnig á milli Keflavíkur og Akureyrar en það skýrir fækkunina milli ára ásamt niðurfellingum fluga vegna veðurs.

Sætanýting nam 60,0% og jókst um 1,2 prósentustig á milli ára. Fjöldi seldra blokktíma í leiguflugi dróst saman um 9% á milli ára og nýting lækkaði vegna viðhalds. Fraktflutningar jukust um 8% á milli ára. Framboðnum gistinóttum hjá hótelum félagsins fjölgaði um 20% á milli ára. Herbergjanýting var 66,9% samanborið við 68,2% í desember 2017.

Aldrei flutt fleiri farþega

Icelandair hefur aldrei flutt fleiri farþega en á árinu 2018. Þeir voru alls  4,1 milljón og fjölgaði um 2% frá fyrra ári. Sætanýting ársins nam 81,0% og dróst saman um 1,7 prósentustig samanborið við árið 2017.

Heildarfjöldi farþega Air Iceland Connect var 319 þúsund og dróst saman um 9% á milli ára. Seldir blokktímar í leiguflugi jukust um 23% og flutt frakt um 7%. Herbergjanýting á hótelum félagsins á árinu 2018 var 80,1% samanborið við 81,2% árið 2017.