Icelandair flutti um 119.600 farþega í desember sl., sem er 20% fjölgun á milli ára í desembermánuði. Framboð á flugsætum jókst um 27% á milli ára í desember. Sætanýtingin nam 72,7%, samanborið við 74,3% á sama tíma árið áður.

Heildarfjöldi farþega hjá Icelandair nam þannig 2.020 þúsund, samanborið við 1.744 þúsund árið 2011 og jókst þannig um 16% á milli ára. Þetta kemur fram í mánaðarlegum flutningstölum frá Icelandair Group.

Framboð Icelandair jókst um 16% á milli ára, þannig að fjölgun farþega var því í takt við aukið sætaframboð. Sætanýting félagsins jókst um 1,4 á milli ára.

Farþegafjöldi Icelandair jókst um 18% á milli ára árið 2011 og 17% á milli ára árið 2010. Heildarfjöldi farþega hjá Icelandair í fyrra nam tæplega 1,75 milljón farþega, samanborið við tæplega 1,5 milljón farþega árið 2010 og tæplega 1,3 milljón farþega árið 2009.

Mikil aukning í fraktflutningum á vegum samstæðunnar

Farþegum Flugfélags Íslands, sem jafnframt er í eigu Icelandair Group, fækkaði um 9% á milli ára í desember þegar félagið flutti um 22 þúsund farþega. Framboð félagsins dróst saman um 14% á milli ára í desember en sætanýtingin jókst um tæp 4% og nam 66,5% í desember.

Farþegafjöldi Flugfélags Íslands lækkaði um 1% á milli ára árið 2012. Hið sama gildir um sætaframboðið en sætanýtingin jókst um tæpt prósent.

Nýting flugflota sem nýttur er til útleigu en er í eigu Icelandair Group dróst saman um tæp 19% á milli ára í desember og dróst því saman um 2,2% á milli ára á árinu öllu. Hér er átt við vélar í eigu samstæðunnar, meðal annars vélar sem leigðar eru út á vegum Lofteidir Icelandic. Seldum blokktímum fækkaði um 10% á milli ára árið 2012 en það má að hluta til rekja til þess að fraktvélar í leiguflugsverkefnum eru einni færri en í fyrra.

Fraktflug á vegum samstæðunnar, sem að mestu fer fram á vegum Icelandair Cargo, dróst saman um 2% á milli ára í desember en jókst þó um 15% á milli ára í fyrra.

Nýting hótelherbergja í eigu samstæðunnar jókst um 2,5% á milli ára í desember en jókst þannig um 3,5% á árinu öllu. Framboð hótelherbergja jókst um 16% á milli ára á árinu og fjöldi seldra gistinátta jókst um 22% á árinu.