Icelandair flutti 267 þúsund í millilandaflugi í maímánuði og voru þeir 22% fleiri en í maí á síðasta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Framboðsaukning  í sætiskílómetrum nam 19%. Sætanýting var 79,7% og jókst um 2,2 prósentustig á milli ára.

Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru rúmlega 24 þúsund í maí sem er aukning um 2% á milli ára. Framboð félagsins í maí var aukið um 2% samanborið við fyrra ár. Sætanýting nam 70,3% og dróst saman um 0,5 prósentustig á milli ára.

Seldir blokktímar í leiguflugi jukust um 21% á milli ára.  Fraktflutningar í áætlunarflugi drógust saman um 3% frá því á síðasta ári. Framboðnum gistinóttum á hótelum félagsins fjölgaði um 2% miðað við maí 2014. Herbergjanýting var 79,0% en hún nam 80,1% í maí í fyrra.