Alls fór Icelandair með 306 þúsund farþega í millilandaflugi í síðasta mánuði og voru þeir 11% fleiri en í sama mánuði í fyrra.  Eins og fram hefur komið er þetta í fyrsta skipti sem félagið flytur yfir 300 þúsund farþega í einum mánuði. Framboð á sætum var 12% meiri en í fyrra og sætanýting var 86,2% samanborið við 85,4% á sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Icelandair sendi frá sér í dag.

Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru rúmlega 32 þúsund í júlí og fækkaði um 10% á milli ára.  Framboð félagsins í júlí var dregið saman um 15% samanborið við júlí í fyrra. Sætanýting nam 73,8% og jókst um 6,5 prósentustig á milli ára.

Seldum tímum í leiguflugi fækkaði um 11% á milli ára. Fraktflutningar jukust um 9% frá því á síðasta ári.

Þá jókst fjöldi seldra gistinótta á hótelum félagsins um 4% milli ára. Herbergjanýting var 89,2% samanborið við 88,4% í júlí í fyrra.