Icelandair flutti um 148 þúsund farþega í apríl sl., sem er 9% fjölgun á milli ára í aprílmánuði. Framboð á flugsætum jókst um 20% á milli ára í apríl en sætanýtingin nam 76%, samanborið við 81% á sama tíma í fyrra.

Þetta kemur fram í mánaðarlegum flutningstölum frá Icelandair Group. Farþegafjöldi Icelandair jókst um 16% á milli ára í fyrra þegar félagið flutti 2.020 þúsund farþega. Þá jókst farþegafjöldinn um 18% á milli ára árið 2011 og 17% á milli ára árið 2010.

Farþegum Icelandair hefur fjölgað um 15% á milli ára það sem af er þessu ári en félagið hafði um síðustu mánaðarmót flutt um 506 þúsund farþega. Framboð á flugsætum hefur aukist um 23% en hins vegar hefur sætanýting félagsins minnkað um rúm 2% á milli ára það sem af er ári.

Farþegum Flugfélags Íslands, sem jafnframt er í eigu Icelandair Group, fækkaði um 5% á milli ára í apríl þegar félagið flutti um 25.500 farþega. Framboð félagsins dróst saman um 10% á milli ára í apríl en sætanýtingin jókst um rúm 3% á milli ára.

Farþegum Flugfélags Íslands hefur fækkað um 9% á milli ára það sem af er þessu ári en þá hefur framboðið af flugi dregist saman um 12% hjá félaginu. Sætanýtingin hefur hins vegar aukist um rúm 2%. Farþegafjöldi félagsins dróst saman um 1% á milli ára í fyrra. Hið sama gildir um sætaframboðið en sætanýtingin jókst um tæpt prósent.

Nýting flugflota sem nýttur er til útleigu en er í eigu Icelandair Group stóð í stað á milli ára í apríl en dróst saman um 2,2% á milli ára á sama tíma í fyrra. Hér er átt við vélar í eigu samstæðunnar, meðal annars vélar sem leigðar eru út á vegum Lofteidir Icelandic. Seldum blokktímum fækkaði um 7% á milli ára nú í apríl og hefur fækkað um 10% á milli ára það sem af er þessu ári.

Fraktflug á vegum samstæðunnar, sem að mestu fer fram á vegum Icelandair Cargo, jókst um 5% á milli ára í apríl og hefur nú aukist um 2% á milli ára það sem af er þessu ári.

Nýting hótelherbergja í eigu samstæðunnar stóð í stað á milli ára í apríl framboð hótelherbergja jókst um 16% á milli ára í apríl. Fjöldi seldra gistinótta jókst einnig um 16% á milli ára í apríl og hefur nú aukist um 23% á milli ára það sem af er þessu ári.