Icelandair flutti rúmlega 100 þúsund farþega í desember sl., sem er 10% fjölgun á milli ára í desembermánuði.

Heildarfjöldi farþega Icelandair á síðasta ári var því um 1.740 þúsund, sem er 18% aukning á milli ára.

Þetta kemur fram í mánaðarlegum flutningstölum frá Icelandair Group en heildarfjöldi farþega hjá Icelandair árið 2010 nam tæplega 1,5 milljón, samanborið við tæplega 1,3 milljón farþega árið 2009. Í október sl. náði Icelandair sama farþegafjölda og árið 2010.

Sætanýting Icelandair í desember var 74% og stóð í stað á milli ára í desember. Sætanýtingin á síðasta ári var um 79% og jókst um 1% á milli ára. Þetta var jafnframt besta sætanýtingin í sögu félagsins.

Aukning hjá Flugfélagi Íslands en samdráttur á leiguverkefnum

Farþegum Flugfélags Íslands, sem jafnframt er í eigu Icelandair Group, fjölgaði um 2% á milli ára í desember þegar félagið flutti tæplega 25 þúsund farþega. Félagið flutti um 353 þúsund farþega á síðasta ári sem þýðir 3% fjölgun farþega á milli ára. Fyrir utan það að farþegum fjölgaði í innanlandsflugi lagði félagið einnig aukna áherslu á flug til Grænlands á árinu. Sætanýting félagsins jókst um 1% á milli ára í fyrra.

Nýting flugflota í eigu Icelandair Group dróst saman um rúm 2% á milli ára í desember. Hér er átt við vélar í eigu samstæðunnar, meðal annars vélar sem leigðar eru út á vegum Lofteidir Icelandic, sem nýttar eru til leiguverkefna á vegum samstæðunnar. Nýting flugflotans dróst saman um 1% á milli ára á síðasta ári, líkt og árið áður.

Fraktflug á vegum Icelandair Cargo jókst um 31% á milli ára í desember. Aukningin í fraktflugi jókst um 7% á milli ára í fyrra, samanborið við 4% aukningu árið 2010.

Þá jókst nýting hótelherbergja í eigu samstæðunnar um 3,3% á milli ára í desember. Nýting hótelherbergja samstæðunnar á síðasta ári jókst um tæp 2% á milli ára.

© Gunnhildur Lind Photography (Gunnhildur Lind Photography)