Icelandair flutti rúmlega 168 þúsund farþega í september sl., sem er 15% fjölgun á milli ára og hefur félagið aldrei áður flutt jafnmarga farþega í septembermánuði.

Heildarfjöldi farþega það sem af er ári nemur nú tæplega 1,4 milljón sem er 19% aukning á milli ára. Rétt er að geta þess að í júlí sl. sló Icelandair farþegamet þegar félagið flutti rúmlega 254 þúsund farþega. Þá hefur félagið slegið eigið farþegamet í hverjum mánuði sl. þrjá mánuði.

Þetta kemur fram í mánaðarlegum flutningstölum frá Icelandair Group en heildarfjöldi farþega hjá Icelandair á síðasta ári nam tæplega 1,5 milljón, samanborið við tæplega 1,3 milljón farþega árið 2009.

Sætanýting Icelandair í september var rúm 78% sem er 3,7% minna en á sama tíma í fyrra. Sætanýtingin fyrstu átta mánuði ársins er nú tæp 80% og hefur aukist um 1% á milli ára.

Farþegum Flugfélags Íslands, sem jafnframt er í eigu Icelandair Group, fjölgaði um 9% á milli ára í september þegar félagið flutti tæplega 30 þúsund farþega. Farþegafjöldi félagsins jókst lítillega á milli ára í vor en á sama tíma í fyrra var lítið flogið innanlands vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Farþegum Flugfélags Íslands hefur fjölgað um 4% á milli ára það sem af er þessu ári og sætanýtingin um 1,6%.

Mikil aukning í fraktflugi á milli ára

Nýting flugflota í eigu Icelandair Group jókst á milli ára í september eða um rúm 5%. Hér er átt við vélar í eigu samstæðunnar, meðal annars vélar sem leigðar eru út á vegum Lofteidir Icelandic, sem nýttar eru til leiguverkefna á vegum samstæðunnar. Nýting flugflotans jókst um 1% á milli ára á síðasta ári en hefur dregist saman um 1% það sem af er ári.

Fraktflug á vegum samstæðunnar jókst um 26% á milli ára í september. Samdrátturinn í fraktflugi á síðasta ári nam um 4% en aukningin á fyrstu átta mánuðum þessa árs nemur 11% á milli ára.

Þá jókst nýting hótelherbergja í eigu samstæðunnar um 9% á milli ára í september og hefur þannig aukist um 1,6% það sem af er ári.