WOW air flutti 63 þúsund farþega til og frá landinu í febrúar, en það er fjölgun um 122% frá sama mánuði í fyrra. Sætanýting WOW í mánuðnum var 89%, en hún var 88% á sama tímabili í fyrra.

Það sem af er ári hefur WOW air flutt 114 þúsund farþega, en það er 104% aukning í farþegafjölda frá sama tímabili ári áður. WOW air ætlar að auka við sætaframboðið sitt um sem nemur 127% á árinu í 1,9 milljón sæti. Á síðasta ári var sætaframboðið 837 þúsund sæti.

Í vor mun flugfloti WOW air telja ellefu flugvélar sem allar verða skráðar á flugrekstrarleyfi félagsins en til samanburðar þá voru aðeins tvær flugvélar skráðar á leyfi WOW air síðasta sumar.