Hagnaður FAST1, sem er fasteignasjóður í rekstri Íslandssjóða, nam 189,5 milljónum króna í fyrra en félagið tapaði 36,5 milljónum króna árið áður

Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði og skatta, eða EBITDA, nam 407,3 samanborið við 109,3 milljónum króna árið á undan.

FAST1 sérhæfir sig í rekstri og útleigu fasteigna. Á meðal helstu eigna er Höfðatorg í Reykjavík.