Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu dróst verulega saman á milli vikna í vikunni, en veltan síðustu vikur hefur verið nokkuð  yfir meðallagi.

Þannig nam veltan nú í vikunni 1.720 milljónum króna samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands, samanborið við 2.092 milljónir króna veltu í síðustu viku og dróst því saman um 18% á milli vikna.

Fjögurra vikna meðalvelta dregst einnig saman á milli vikna en í byrjun október hafði fjögurra vikna meðalvelta ekki verið hærri frá því í lok síðasta ár (þegar velta á markaði hafði reyndar verið óvenju mikil í desember á síðasta ári). Þannig nemur fjögurra vikna meðalvelta nú 2.104 milljónum króna, samanborið við 2.284 milljónir í vikunni á undan.

Fjögurra vikna meðalvelta  hefur nú lækkað um 180 milljónir króna á fjórum vikum.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur hækkað um 41% á milli ára, en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta dregist saman um 28% milli ára.

Tólf vikna meðalvelta jókst á milli vikna í vikunni eða um 25 milljónir króna, og nemur nú 1.905 milljónum króna. Þá hefur 12 vikna meðalvelta ekki verið hærri frá því í byrjun febrúar sl.

Þá má skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði en hún er nú 1.630 milljónir króna á viku og hefur aukist um 40% á milli ára.

Í þessari viku:

Alls var 65 kaupsamningum þinglýst í vikunni, samanborið við 72 samninga í vikunni á undan. Alls var 39 samningum þinglýst að meðaltali á síðasta ári en 54 samningum að meðaltali á viku það sem af er þessu ári þannig að fjöldi samninga síðustu mánuði er töluvert yfir meðaltali.

Meðalupphæð á hvern samning lækkaði á milli vikna í þessari viku og nam 26,5 milljónum króna, samanborið við 29 milljónir króna í síðustu viku. Meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári var 34,6 milljónir króna en það sem af nemur þessu ári nemur meðalupphæðin 28,7 milljónum króna og hefur því lækkað nokkuð.

Meðaltal síðustu 12 vikna er þó 29,4 milljónir króna.