Kaupþing banki hf. hefur gengið til samninga við Eikarhald ehf. um sölu á öllu hlutafé í Eik fasteignafélagi hf., segir í tilkynningu. Gengið verður frá viðskiptunum 4. apríl, þegar greiðsla og afhending hlutafjárins fer fram. Kaupverðið verður greitt með reiðufé en í tilkynningunni kemur ekki fram hvert kaupverðið er.

Eikarhald ehf. er í eigu Baugs Group hf. (22,7%), FL Group hf. (49%), Fjárfestingafélagsins Primus ehf. (10,15%) ? í eigu Hannesar Smárasonar forstjóra FL Group - og Saxbygg ehf. (18,15%) sem er í eigu Saxhóls ehf. og Byggingarfélags Gylfa og Gunnars ehf.

Þetta eru sömu aðilar og standa að Húsasmiðjunni, að FL Group viðbættu. Eignarhaldi Húsamiðjunnar er svo háttað: Baugur Group hf. 45%, Saxhóll ehf. 18,3%, Fjárfestingarfélagið Prímus ehf. 18,3% og Byggingarfélag Gylfa og Gunnars ehf. 18,3%.

Hagnaður Kaupþings banka hf. vegna sölunnar nemur um fjórum milljörðum króna, sem munu bókfærast í 2. ársfjórðungi 2007.

Velta Eikar fasteignafélags hf. 2006 var 1.181 milljón króna. Hagnaður fyrir skatta var 582 milljónir króna. Bókfært virði eigna 31.12.2006 var 14.600 milljónir króna og bókfært virði skulda 31.12.2006 var 12.475 milljónir króna. Hjá félaginu starfa átta manns.