Hagnaður fasteignafélagsins Stoðir á árinu 2005 nam 2.085 milljónum króna. Heildareignir samstæðunnar í árslok námu 72.663 milljónum króna. en námu 45.450 milljónum í árslok 2004 og hafa því hækkað um 27.213 milljónir. Eigið fé félagsins í árslok nam 10.832 millj. kr. en nam 9.452 milljónum í árslok 2004.

Í árslok 2005 gerði félagið samning um kaup á öllu hlutafé í danska fasteignafélaginu Atlas Ejendomme A/S og verður félagið hluti af samstæðureikningi félagsins frá yfirtökudegi sem var 6. janúar 2006. Fjárfestingin og lánveitingar til Atlas hafa verið færðar í ársreikninginn.

Fasteignir félagsins eru verslunarhúsnæði, skrifstofur, hótel og vörugeymslur.  Meðal leigjenda má nefna Haga, Flugleiðahótel, Fasteignir Ríkissjóðs, KB banka og SPRON.  Nýtingarhlutfall fasteigna er yfir 98%.