Fasteignafélögin hækkuðu mest í kauphöll Nasdaq í dag. Reitir hækkaði mest um 6,85% í 98 milljóna króna viðskiptum og stendur nú í 53,00 eftir fjórðungsuppgjör félagsins . Eik hækkaði næstmest um 5,22% í 147 milljóna króna viðskiptum og Reginn hækkaði um 4,46% í 101 milljóna króna viðskiptum. Enginn viðskipti áttu sér stað með bréf Heimavalla.

Mestu viðskiptin áttu sér stað með bréf Marel sem hækkuðu um 3,04% og stendur nú í 645 krónum á hlut eftir 632 milljóna króna viðskipti. Bréf Marel stóðu hæst í 648 krónum þann 17. janúar og hafa því náð sér að nýju eftir erfiðleika af völdum COVID19.

Næst mestu viðskiptin áttu sér stað með bréf Símans sem hækkuðu um 0,17% í 345 milljóna króna viðskiptum. 310 milljóna króna viðskipti áttu sér stað með bréf Sjóvá sem hækkuðu um 2,14% í þriðju mestu viðskiptum dagsins.

Aðeins þrjú fyrirtæki lækkuðu í dag. Bréf Icelandair féllu um 4,38% í 14 milljóna króna viðskiptum og standa nú í 1,53 krónum á hlut. Bréf Brim lækkuðu um 2,44% í 6 milljóna króna viðskiptum og bréf Sýnar lækkuðu um 0,54% í þriggja milljóna króna viðskiptum.