Gengi hlutabréfa fasteignafélaganna í Kauphöllinni hefur hækkað töluvert það sem af er degi. Þegar þegar þetta er skrifað hefur gengi bréfa Reita hækkað um 3,61% í 364 milljóna króna viðskiptum , Regins um 3,75% í 192 milljóna viðskiptum og Eikar um 2,79% í 238 milljóna viðskiptum.

Þá hefur gengi bréfa Icelandair Group hækkað um 2,22% og Marel um 1,21% það sem af er degi.