Kaup Íslendinga á fasteignum á Spáni hafa dregist eilítið saman á þessu ári eftir tvö metár í röð. Alls keyptu Íslendingar fasteignir á Spáni fyrir um 16,2 milljónir evra eða um 2,2 milljarða króna hjá Medland árin 2017 og 2018. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

„Salan hefur dregist eitthvað saman síðan í vor, síðan Wow Air fór í gjaldþrot. Verkföll og gengi krónunnar höfðu líka sitt að segja. Það er eins og Ísland hafi verið á varðbergi gagnvart kreppuástandi og allir að bíða storminn af sér. Þetta er svo sem í takt við það sem hefur verið að gerast á Íslandi þar sem rólegt hefur verið yfir fasteigna- og bílamarkaðnum. Auk þess var veðurblíðan með eindæmum góð á Íslandi í sumar, það hefur sitt að segja. Með haustinu er að komast hreyfing á þetta aftur og vonandi eigum við góðan lokasprett núna með landanum. Enn eru eftir þrír mánuðir af árinu og við stefnum að því að slaga hátt í tölur síðustu tveggja ára,“ segir Steina Jónsdóttir, markaðsstjóri Íslandsdeildar fasteignasölunnar Medland í tilkynningunni.

Medland verður með sérstaka kynningu á fasteignum á Spáni í Hörpu um helgina, laugardag og sunnudag, frá kl. 11 til 18 báða dagana. „Áhuginn á fasteignum á Spáni hefur ekki minnkað þó að fólk hafi haldið að sér höndum í sumar. Við ætlum að mæta þeim áhuga með stæl og kynna úrval nýrra fasteigna og kaupferlið á Spáni fyrir landsmönnum. Þetta er þriðja stóra ráðstefnan sem Medland skipuleggur fyrir Íslendinga þar sem við bjóðum byggingaraðilum frá Spáni með okkur. Það hefur alltaf verið vel mætt og á því verður engin breyting núna, sýnist mér, skráningin lofar góðu,“ segir Steina.

Hún segir að Íslendingar sæki ýmist í íbúðir í góðum kjörnum með aðgangi að sundlaug eða falleg einbýli með einkasundlaug. Vinsælustu eignirnar séu annars vegar um 80 fermetra íbúðir og hins vegar 120-130 fermetra einbýlishús. „Staðsetningin við Miðjarðarhafið býður upp á meiri lífsgæði. Fólk sækir í birtuna og veðurblíðuna auk þess sem verðlagið er sérlega hagstætt. Flestir okkar viðskiptavinir eru fólk sem er að bæta við sig eign. Við erum með frekar fáa sem eru að kaupa til þess að flytja alfarið til Spánar en það eru þó einhver dæmi um það,“ segir hún.

Medland býður viðskiptavinum sínum að skoða nýjar eignir við austurströnd Spánar og að sögn Steinu er framboðið sífellt að aukast. „Lægstu verð á eignaskrám hjá okkur eru um 12-13 milljónir króna en hæstu verð eru milli 300 og 500 milljónir, fyrir lúxus villur og óviðjafnanlega staðsetningu. Úrvalið er mikið og fjölbreytt.“