Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu dróst nokkuð saman á milli vikna í vikunni eftir að hafa aukist verulega í vikunni á undan. Síðustu vikur hafa verið nokkuð rokkandi í veltu en veltan á einni viku hefur verið á bilinu 860 milljónir króna upp í tæpar 2.900 milljónir króna.

Þannig nam veltan í vikunni 1.360 milljónum króna samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands, samanborið við 2.870 milljónir króna veltu í vikunni á undan og dróst því saman um 53% á milli vikna.

Fjögurra vikna meðalvelta hækkaði í vikunni, fjórðu vikuna í röð, og er nú 2.011 milljónir króna. Fjögurra vikna meðalvelta hefur nú hækkað um 568 milljónir króna á fjórum vikum.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur nú aukist um 43% á milli ára en hafði á sama tíma í fyrra hækkað um 47% á milli ára.

Tólf vikna meðalvelta dróst hins vegar saman um 60 milljónir króna á milli vikna í vikunni og nemur nú 1.767 milljónum króna. Þá má skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði en hún er nú 1.633 milljónir króna á viku og hefur aukist um 16% á milli ára.

Í síðustu viku:

Alls var 56 kaupsamningum þinglýst í vikunni, samanborið við 81 samning í vikunni á undan. Alls var 56 samningum þinglýst að meðaltali á viku á síðasta ári en 57 samningum að meðaltali á viku það sem af er þessu ári.

Meðalupphæð á hvern samning nam 24,3 milljónum króna í vikunni, samanborið við 35,4 milljónir króna í vikunni á undan. Meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári var 28,2 milljónir króna en 29,2 milljónir króna það sem af er ári.

Meðaltal síðustu 12 vikna er 28,6 milljónir króna á hvern samning.