Hægst hefur á fasteignamarkaðnum eftir mikla siglingu undanfarinna ára. Meðalsölutími íbúða annarra en nýbygginga hefur þó haldist nokkuð stöðugur lengi á höfuðborgarsvæðinu. Umsvif byggingageirans minnkuðu lítillega í maí og júní sé miðað við veltu en á fyrstu mánuðum ársins hafði þegar tekið að hægja á vexti hans. Samdrátturinn er svipaður og í öðrum atvinnugreinum, en sögulega hafa sveiflur í byggingariðnaði oft verið meiri. Eins hefur dregið úr innflutningi á byggingarhráefnum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs.

Í skýrslunni segir að árshækkun íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hafi verið 2,4% í ágúst samkvæmt vísitölu paraðra íbúðaviðskipta. Megnið af þeirri hækkun hafi átt sér stað í september til desember í fyrra, hækkunin á fyrstu átta mánuðum þessa árs sé aðeins um 0,5%. Árshækkun íbúðaverðs í nágrannasveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins hafi numið 6,3% og annars staðar á landsbyggðinni um 3%. Meðalsölutími íbúða hafi haldist nokkuð stöðugur á árinu en meðalsölutími nýrra íbúða lækkaði aftur eftir að hafa hækkað í maí síðastliðnum.

Hóflegar hækkanir leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu

Þá kemur einnig fram að talsverður munur sé á þróun leiguverðs eftir landssvæðum. Árshækkun á leiguverði hafi mælst 5,2% á höfuðborgarsvæðinu í ágúst á sama tíma og almennt verðlag hafi hækkað um 3%. Á Suðurnesjum hafi leiguverð hins vegar lækkað á milli ára, eftir mjög kröftugar hækkanir árið þar á undan. Leiguverð á Suðurlandi hafi haldið áfram að hækka verulega eða um 17,2%, en á Austurlandi hafi það lækkað um 14% frá sama tíma árið 2018.

Þá telja fleiri leigjendur að þeir verði áfram á leigumarkaði eftir 6 mánuði en hefur verið og áfram eru tiltölulega fáir leigjendur sem telja líklegt eða öruggt að þeir muni kaupa sér fasteign á næstu 6 mánuðum.

Umsóknir um húsnæðisbætur eru einnig misjafnar eftir landshlutum, en tiltölulega margir hlutfallslega á Suðurnesjum og fáir á Suðurlandi og Austurlandi eru meðal umsækjenda.

Vextir á fasteignalánum lækkað

Í skýrslunni segir jafnframt að vextir Seðlabankans hafi lækkað um 1,25 prósentustig frá því í maí síðastliðnum sem hafi leitt til þess að vextir á fasteignalánum hafa einnig lækkað. Lækkunin sé þó misjöfn, allt frá 0,5 prósentustigum og að 1,7 prósentustigum. Aðeins hafi dregið úr nýjum íbúðalánum bæði frá fyrri mánuði og frá sama mánuði árinu áður. Mikill munur sé þó á samsetningu nýrra lána en ný óverðtryggð lán hafi aukist um 41% á milli ára meðan verðtryggð lán hafa dregist saman um 51%.

Starfsfólki með erlent lögheimili fækkað

Loks kemur fram í skýrslunni að starfsfólk í byggingariðnaði með erlent lögheimili hafi farið fækkandi undanfarin tvö ár og fækki enn. Starfsfólki með íslenskt lögheimili hafi hins vegar ekki verið fleira síðan árið 2008 og heildarfjöldi starfsfólks í greininni sé því enn með mesta móti. Því fjölgi þó hægar en áður og voru 3% fleiri á öðrum ársfjórðungi þessa árs en á sama tíma í fyrra.